Dagana 28 og 30 apríl munu Samtök um Atferlisgreiningu á Íslandi (SATÍS) bjóða upp á vinnustofur um gerð einstaklingsnámskrár fyrirnemendur í snemmtækri atferlisíhlutun.
Fyrir hverja er vinnustofan?
Vinnustofan er ætluð fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla sem vinna með nemendum með þroskafrávik í
atferlisíhlutun. Þátttakendur skulu vera búnir að fylla út í færnimatslista að eigin vali (t.d. ABLLS-R, VB-MAPPeða listann úr bókinni Behavioral Intervention for Young Children with Autism, „(gráa bókin“)fyrir að minnsta kosti einn nemanda.
Lýsing á vinnustofu
Vinnustofunni verður skipt upp í tvo daga. Á fyrri deginum verður farið yfir mismunandi færnimatslista og hvernig skal setja upp viðeigandi og mælanleg markmið út frá niðurstöðum færnimatslista. Í lok fyrsta dags fá þátttakendur heimaverkefni sem þeir vinna að fyrir dag tvö. Á seinni deginum verður farið yfir heimaverkefniþátttakenda og hvernig má kenna mismunandi færni með aðferðum atferlisíhlutunar.
Markmið
- Að þátttakendur þekki til þeirra færnimatslista sem eru notaðir mest í atferlisíhlutun í íslenskum
leik- og grunnskólum - Að þátttakendur læri að velja viðeigandi markmið út frá mati á færni og með óskir skjólstæðingsins
og/eða fjölskyldunnar að leiðarljósi - Að þátttakendur kunni að setja niður mælanleg markmið og geti skilgreint hvernig metið sé að
færni sé lærð - Að þátttakendur geti útskýrt hvernig skuli kenna þá færni sem sett er í einstaklingsnámsskrá og
hvernig hún verði mæld
Leiðbeinendur á námskeiðinu:
Ása Rún Ingimarsdóttir MSc, BCBA. Atferlisfræðingur í Klettaskóla
Berglind Sveinbjörnsdóttir, PhD, BCBA. Lektor við Háskólann í Reykjavík
Hólmfríður Ó. Arnalds, MSc, BCBA. Atferlisfræðingur á Greiningar- og
Ráðgjafarstöð Ríkisins
Katrín Sveina Björnsdóttir, MSc. Atferlisfræðingur á Greiningar- og
Ráðgjafarstöð Ríkisins
Steinunn Hafsteinsdóttir, MSc, BCBA. Fagstjóri í Arnarskóla