Skilmálar

SATIS
Samtök um atferlisgreiningu á Íslandi

Persónuverndarstefna

Meðferð persónuupplýsinga.
SATIS tryggir eftir fremsta megni, með viðurkenndri og öruggri tækni, öryggi persónuupplýsinga sem við söfnum um viðskiptavini okkar og annarra sem eru í samskiptum við okkur þar sem persónuupplýsingum er safnað. Öll meðferð persónuupplýsinga er samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 2018 nr. 90 27. júní.

1. Tilgangur og lagaskylda.
Persónuverndarstefna SATIS byggir á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 2018 nr. 90 27. júní. Við söfnum eingöngu upplýsingum þar sem það er nauðsynlegt til þess að tryggja þjónustu og uppfylla lagalegar skyldur gagnvart löggjafarvaldinu.

2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings.

3. Persónuupplýsingar sem SATIS safnar.
Við skráningu er safnað helstu upplýsingum eins og: nafni, kt., símanúmeri, heimilisfangi, netfangi og í einstaka tilvikum nánari upplýsingum.
Persónuupplýsingar eru geymdar í eins skamman tíma og hægt er en við sem þjónustuaðili erum bundin af því að uppfylla lagaákvæði á hverjum tíma, t.d. varðandi bókhald og aðra þjónustu félagsins.
Vefsíða félagsins atferli.is er er hýst á öruggum vefþjónum og notast við viðurkennda SSL dulkóðun. Allar persónuupplýsingar við umsókn og skráningu á vefsíðu félagsins eru því dulkóðaðar.
Við komu á vefsíður okkar geta verið skráðar nauðsynlegar upplýsingar um heimsóknir, IP-tölur og aðrar upplýsingar geta verið varðveittar, sjá nánar í lið 9. um vafra-kökur.

4. Persónuupplýsingar sem SATIS safnar ekki.
SATIS safnar ekki viðkvæmum persónuupplýsingum eins og (ekki takmarkað við) stjórnmálaskoðanir, kynþátt, trúarbrögð, heilsufarsupplýsingum, útlitstengdum upplýsingum svo sem myndum eða öðrum álíka upplýsingum, skilgreint í 3 lið 3. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 2018 nr. 90 27. júní.

5. Miðlun persónuupplýsinga.
Engum persónuupplýsingum er deilt til þriðja aðila nema með leyfi viðkomandi aðila (persónu) og það sé nauðsynlegt til þess að veita þá vöru og / eða þjónustu sem viðkomandi sækist eftir og við þurfum að uppfylla samkvæmt okkar samningi. Lagalegar skyldur gagnvart yfirvöldum og / eða eftirlitaðilum geta orðið til þess að við verðum að afhenda persónuupplýsingar til þriðja aðila.

6. Geymsla og vinnsla persónuupplýsinga
Hjá SATIS fer geymsla og vinnsla persónuupplýsinga fram svo lengi sem einstaklingur er skráður í skrár okkar, það sé nauðsynlegt til að veita viðkomandi þjónustu og lagaákvæði segja til um.

7. Réttindi einstaklinga
Einstaklingar geta fengið upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar eru geymdar hjá SATIS um þá.
Einstaklingar geta átt rétt á að persónuupplýsingum um þá sé eytt, þær leiðréttar og / eða vinnsla þeirra sé takmörkuð.
Einstaklingar geta átt rétt á því að gögn um þá séu flutt til þeirra sjálfra eða annars ábyrgðaraðila á tölvutæku formi. Þessi réttindi geta verið takmörkuð við ákveðnar persónuupplýsingar og eiga ekki við í öllum tilvikum.

8. Breytingar á persónuverndarstefnu
Persónuverndarstefna SATIS er í sífelldri endurskoðun og áskilum við okkur rétti til að breyta og bæta hana eftir því sem þurfa þykir og nauðsynlegt er til þess að uppfylla lög og skyldur.

9. Vafra-kökur
Hvað eru vafra-kökur (Cookies)?:
Eins og algengt er á næstum öllum faglegum og opinberum vefsíðum notar okkar vefsíður vafra-kökur, sem eru örlitlar skrár sem er hlaðið niður á tölvuna þína til að bæta upplifun þína við notkun. Þessi síða lýsir þeim upplýsingum sem safnað er, hvernig við notum þær og af hverju við þurfum stundum að geyma þessar vafra-kökur. Við munum einnig deila hvernig þú getur komið í veg fyrir að þessi vafra-kökur séu geymdar, það getur hinsvegar dregið úr eða “brotið” ákveðna þætti og virkni vefsvæða.
Nánari upplýsingar um vafra-kökur, sjá Wikipedia grein um HTTP Cookies.

Hvernig notum við vafra-kökur:
Við notum vafra-kökur af ýmsum ástæðum sem lýst er hér að neðan. Í flestum tilfellum er því miður enginn stöðluð leið til þess að slökkva á vafra-kökum án þess að slökkva á virkni og eiginleikum sem þær bæta við vefsíðurnar. Mælt er með því að þú hafir allar vafra-kökur virkar ef þú ert ekki viss um hvort þú þarfnist þeirra eða ekki, ef þær eru notaðir til að veita þjónustu sem þú notar.
Slökkt á vafra-kökum:
Þú getur komið í veg fyrir að vafra-kaka sé stillt eða skráð með því að stilla stillingarnar í vafranum þínum (sjá hjálpina í vafranum þínum um hvernig þetta er gert). Athugaðu að er slökkva á vafra-kökum mun það hafa áhrif á virkni þessa og margra annarra vefsvæða sem þú heimsækir. Sé slökkt á vafra-kökum mun það venjulega leiða til þess að slökkva á tiltekinni virkni og eiginleika vefsíða. Því er mælt með því að þú slökkvir ekki á vafra-kökum.

Vafra-kökur sem SATIS setur:
Vafra-kökur þriðja aðila:
Í sérstökum tilvikum getur SATIS notað vafra-kökur frá þriðja aðila sem við treystum. Í eftirfarandi texta eru upplýsingar um hvaða kökur þriðja aðila þú gætir lent á í gegnum þessa síðu.
• Þessi síða (atferli.is) getur notað Google Analytics eða sambærilega þjónustu sem er útbreidd og traust greiningarlausnin á vefnum til að hjálpa okkur að skilja hvernig þú notar síðuna og leiðir til að bæta reynslu þína og þjónustu við þig. Þessar kökur geta fylgst með hlutum eins og hversu miklum tíma þú eyðir á síðunni og síðurnar sem þú heimsækir. Þetta getur hjálpað okkur við að búa til áhugavert efni fyrir þig og aðra notendur í framtíðinni.
Frekari upplýsingar um Google Analytics Vafra-kökur er að finna á opinberu Google Analytics síðunni.
• Þegar við fáum heimsóknir á vef okkar er mikilvægt fyrir okkur að skilja tölfræði um hversu margir gestir eru á síðunni, hvaðan heimsóknir koma o.fl. og sem slíkar eru þær upplýsingar sem þessar vafra-kökur fylgjast með til þess að geta veitt betri og markvissari þjónustu.

Nánari upplýsingar:
Vonandi skýrir þetta vafra-kökur út fyrir þig og eins og áður var getið, ef eitthvað er sem þú ert ekki viss um hvort þú þarft eða ekki, þá er það yfirleitt öruggara að láta Vafra-kökur virka og heimila þær, þannig tryggir þú bestu virkni á þeim eiginleikum sem þú notar á vefsvæði okkar.

Nánari upplýsingar og óskir, vinsamlega hafið samband.

SATIS
Samtök um atferlisgreiningu á Íslandi
Netfang: satis.felag@gmail.com
Vefur: https://atferli.is/hafa-samband/