Aðalfundur SATÍS – Þriðjudaginn 25. nóvember kl. 19:30–21:00
Kæru félagsmenn SATÍS,
Hér með er boðað til aðalfundar Samtaka atferlisfræðinga á Íslandi (SATÍS) sem verður haldinn:
Þriðjudaginn 25. nóvember kl. 19:30–21:00
Staðsetning: Háskólanum í Reykjavík (U203)
Lagabreytingatillögur:
Stjórn óskar eftir tillögum félagsfólks að lagabreytingum og að félagsfólk sendi þær sem fyrst til Ásu Rúnar Ingimarsdóttur á netfangið: asaruningimars@gmail.com
Tilnefningar í stjórn:
Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi stjórnarstöður:
- Ritari
- Gjaldkeri
- Tvær stöður meðstjórnenda
Tilnefningar má senda á netfang stjórnar: satis.felag@gmail.com fyrir 25. nóvember kl. 12:00. Heimilt er að tilnefna sjálfan sig eða annað félagsfólk (með samþykki viðkomandi). Formaður SATÍS veitir nánari upplýsingar um stöðurnar, sé þess óskað (Karl F. Gunnarsson: formadur@atferli.is / sími: 525 4082). Þeir sem eru áhugasamir en óvissir, ekki hika við að hafa samband við formann og ræða málin.
Dagskrá aðalfundar
Samkvæmt lögum SATÍS skulu eftirfarandi mál tekin fyrir á aðalfundi:
- Stjórn félagsins gefur skýrslu um störf sín á liðnu ári.
- Gjaldkeri gerir grein fyrir fjárumsvifum samtakanna.
- Skoðaðir reikningar stjórnar lagðir fram til samþykktar.
- Árgjald ákveðið til eins árs. Árgjald nemenda skal samsvara 50% af almennu árgjaldi.
- Lagabreytingar kynntar og kosið um þær.
- Kosning í stjórn og önnur ábyrgðarstörf.
- Áætlun um störf næsta árs.
- Önnur mál.
Við hvetjum alla félaga til að mæta og taka þátt í mótun og uppbyggingu félagsins.
Kveðja,
Stjórn SATÍS