Afmælisþing SATÍS 6. nóvember 2009

Þann 6. nóvember 2009 var haldið upp á fimm  ára afmæli SATÍS.  Satís félagar,  velunnarar félagsins og aðrir áhugasamir fjölmenntu í Odda við Háskóla Íslands og hlustuðu á erindi um  árdaga atferlisgreiningar á Íslandi, kynntu rannsóknir sínar og hagnýta vinnu í atferlisgreiningu. Í lok dags var svo spáð í framtíðina. (Þó ekki með kristalskúlu…)  Á milli erinda var hungrið satt með gómsætri afmælisköku og þorstanum svalað með sætu freyðivíni.  Um kvöldið hittust SATÍS félagar og guðfaðir þeirra  í Skólabæ og skeggræddu stöðuna í atferlisgreiningu hér á landi. Myndir sem Ragnar og Kristín tóku á þessum frábæra degi  má sjá hér á næstu síðu.

The media man

Sitja-og-prjóna-námskeið hvað? ha?

2 Responses to “Afmælisþing SATÍS 6. nóvember 2009”

  1. Anna-Lind says:

    Skemmtilegar myndir frá skemmtilegum degi – takk, Kristín! :)

  2. Anna Ingeborg says:

    Þarna hefði ég gjarna viljað vera! Til hamingju með þessa fínu nýju síðu, gott fólk.

Rita ummæli