Um samtökin

Samtök áhugafólks um atferlisgreiningu á Íslandi (SATÍS) voru stofnuð 15. ágúst 2004.

Samtökin eru vettvangur áhugafólks um vöxt og viðgang atferlisgreiningar á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að kynna og koma á framfæri þekkingu á atferlisgreiningu sem leið til bættra lífsgæða. Samtökin leggja áherslu á að styðja hagnýtar rannsóknir og frumrannsóknir á sviði atferlisgreiningar, tengjast nemendum og leiðbeina öllum þeim sem eru áhugasamir um þessa vísindagrein.

Félagsmenn eru um 40 talsins og koma úr ýmsum áttum. Í hópnum eru m.a. atferlisfræðingar, sálfræðingar, þroskaþjálfar, kennarar, hálskólanemar og foreldrar barna með þroskaraskanir. Félagsmenn hafa aðgang að póstlista þar sem rætt er um ýmis mál tengd atferlisgreiningu.

Formaður SATÍS er Kristín Guðmundsdóttir, ritari er Atli F. Magnússon og Þórhalla Guðmundsdóttir er gjaldkeri.

Samtökin eru öllum opin.

Til að gerast félagi: Hafið samband við Þórhöllu Guðmundsdóttur, gjaldkera: thorhalla.gudmundsdottir@reykjavik.is