Það gleður okkur að kynna inn nýja og flotta heimasíðu SATÍS félagsins. Nú fer hún formlega í loftið á næst síðasta degi ársins 2012 og verður vonandi góð byrjun á nýju ári félagsins þar sem við getum vera enn virkari á almennum vettvangi.
Á þessari síðu verða birtir pistlar eftir félagsmenn sem og aðra áhugasama sem vilja senda inn efni sem tengist atferlisgreiningu. Einnig verða fréttir og aðrar tilkynningar birtar hér sem og á facebook síðu félagsins.
Ný fan-facebook síða fór í loftið fyrir stuttu síðan og hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama að deila henni og kynna fyrir öðru áhugasömu fólki um atferlisgreiningu.
Njótið nýju síðunnar kæru SATIS félagar og endilega sendi okkur athugasemdir, efni eða fyrirspurnir á satis.felag@gmail.com
kær kveðja
STJÓRNIN
En gaman. Hjartanlega til hamingju öll sömul 🙂